fimmtudagur, nóvember 06, 2008

Fyndið stelpuskott...


Hún litlan mín getur nú oft framkallað ROSAEGAR hláturgusur hjá okkur foreldrunum... Er ÓGEÐfyndin þetta litla skott... Hefur doltið prakkaralegt glott alltaf á andlitinu og er HRIKALEGA fyndin yfir höfuð... Hún var t.d. stödd í Bónus verslun hér í bæ með múttu sinni sem er svo sem ekki frásögu færandi nema fyrir skemmtilega súrt komment sem litla dóttlan átti í búðinni... Við vorum sumsé að versla heimilisinnkaupinn mæðgurnar og vorum staddar fyrir framan grænmetisklefann svo kallaða og þar fyrir framan var risa stampur stútfullur af litlum sápufígúrum... Litla daman veit að það má ekki betla mikið í innkaupaferðum en lét sig hafa það og reyndi að kría eitt stykki sápu út úr móður sinni... Daman setti upp englalúkkið... skellti á sig geislabaugnum og spurði mjög varfærnislega: Mamma má ég fá svona sápu? Ef ég lofa að vera góð í búðinni???... Mamman á ROSALEGA erfitt með að neita litlum krúttlegum dúllum um eitthvað og sérstaklega litlu dekurrófunni sinni og svaraði því um hæl: Já ef þú LOFAR að biðja ekki um neitt meira og verður ROSALEGA góð í búðinni... Litla skottið sjarmaði nottla óendanlega fyrir múttu sinni og sagði: Takk mamma mín þú ert best... Mamman var notta súperánægð með hólið frá litla sjarmörnum og skundaði með krúttið inn í Grænmetisklefan... Litli Engillinn fór þá að SKIPULEGGJA notkun á sápustykkinu og var staðráðin í að nota þetta undurfagra sápustykki strax og hún kæmi heim... Skottið segir þá MJÖG hátt og hátíðlega: (ég tek það fram að í klefanum voru að minnsta kosti 1000 manns eða svo) Mamma má ég þá fara í bað þegar ég kem heim? Mamman svarar aðsjálfsögðu játandi og litla dýrið verður himin sæl og heldur áfram: Mamma má ég þá fara alein í bað???.. Mamman jánkar því.. Litla skottið segir: Ekki með Andreu???... (sem er n.b. stóra systir hennar) Mamman segir já já þú mátt fara alein í bað með nýju sápuna... Litla skottið setur upp engla sjarmörslúkkið og segir: Takk mamma mín þú ert best... Og heldur áfram að blaðra um Baðferðina stórkostlegu... Mamma, ég verð sko að fara í bað... Mamman svarar játandi og er farin að finnast talið beinast aðeins of mikið að væntanlegri baðferð... En daman er sko ekki á þeim buxunum að hætta að blaðra um BAÐIÐ... Mamma ég verð sko að fara í bað afþví að ég er með LÚS... Mamman segir HÁTT og SKÝRT... NEI þú ert EKKI með lús (og það er staðreynd að skottið er ALGJÖRLEGA Lúsarlaust) Daman Þrætir um það við mömmu sína að hún sé VÍST með lús og þessvegna verði hún að nota þessa sápu... Leikar stóðu því þannig að litla skottið var SANNFÆRÐ um að hún væri með lús á meðan móðir hennar sem var orðin rauð í framan og fann augu allra á sér var að RÍFAST við 3 ára grísling um það hvort hún væri með lús eða ekki... GARG... Fólk fór að taka STÓRANN sveig fram hjá okkur mæðgunum... Og hvort ætli fólk hafi trúað Móðurinni sem var orðin fjólublá í framan eða Litla englinum með geislabauginn...

sunnudagur, nóvember 02, 2008

Valkvíði á háu stigi...

Irpan komin í ruglið bara... Er haldin valkvíða á HÁU stigi... Getur ekki ákveðið hvað hún vill verða... Hvað hún ætlar að gera við líf sitt... Hvað hún vill læra... Hvar hún vill eiga heima... Hvar hún ætlar að BLOGGA... Og og og... KLIKKUÐ STELPA... En nú er daman komin á upprunalegar slóðir... farin að blogga á ný... Frestaði náminu um oggopinkutíma... fram að áramótum allavega... Er komin í 100% vinnu í kreppunni... Ætlar að einbeita sér að gríslingunum sínum og arbætinu... Gaman aðessu sko... Nú getur múttan bara tjillað í friði á kveldin... farið að lesa fyrir krúttin sín... hangið á fésbókinni öllum stundum... Föndrað... og jafnvel knúsað kallinn stundum þegar hann hagar sér vel... og hangsað yfir TV-inu... Íííhaaa...

Irps þurfti að JÁTA sig sigraða í baráttunni við ritgerðarskrímslin sem reyndust henni ofjarl... Baráttan var harðvíg og Irpan var við það að sigra þegar rigerðarskrímslið tók yfirhöndina og malaði dömuna... Ennn Frúin er ekki alveg við það að gefast upp ætlar að hefja næsta bardaga í janúar og þá kannski prufa að taka eitt fag sem tengist fyrra námi... ætlar að byggja ofan á núverandi reynslu... Irps fattaði að hjartað tilheyrir uppeldismálum... OFURLAUNAdraumórar bíða betri tíma enda að verða úrelt hugtak ekki satt...
Irpan er glöð og kát yfir að hafa fjárfest í leikskólakennaramentuninni... Borgar sig sko að vera Leikskólakennari í dag... Þeim verður ekki sagt upp... verða ekki lækkaðir í launum og hafa það skemmtilegt ALLAN daginn með OFURkátum gleðigjöfum sem hafa ekki hugmynd um ástandið í landinu... Orkugefandi og peppandi vinnustaður sko...

Annars er lítið að frétta úr Kársnesbrautarkotinu nema nottla það að Alexinn hálffullorðni er formlega kominn á hinn alræmda unglingaaldur... er orðinn 13 ára snáðinn... Gelar á sér hárið eins og óður maður og er farinn að hugsa MIKIÐ um lúkkið... Mætir á opin hús og diskótek... hefur losnað við geðklofakösstin í BILI og er bara krúttlegastur... Litla skottið er Skemmtilegust í geimi... Vargatítla.is... STJÓRNAR heimilishaldinu með harðri hendi og við þegnarnir í hennar ríki stöndum og sitjum eins og dömunni þóknast... Miðormurinn er ljúf og góð... aðeins að byrja að verða ÓÞEKK samt... en það er bara skemmtilegt... BNAKARINN bjó hér einhverju sinni og heldur sig á heimilinu yfir blánóttina... hefur flutt sig yfir í ný heimkinni sem er Ríkisbatteríið í Efstaleiti... Hangir þar tímunum saman og VINNUR eins og óður maður... Ekki skortur á verkefnum á þeim bænum...
JÆJA þá er pistlinum lokið að þesssu sinni
Ha Det Bra
Irps

þriðjudagur, apríl 08, 2008

Það er MARGT í mörgu...


JÆJA ætli vorið sé ekki farið að láta sjá aðeins í skottið á sér... VONA það sko... Búið að vera YNDISLEGT veður í dag og sæmilegt hitastig... BARA hægt að vera í góðu skapi á svona fallegum degi... Irpan er búin að vera haldin einhverjum BLOGGleiða undanfarna daga... Ekki einu sinni nennt að kíkja BLOGGrúnt hvað þá meira... En nú er frúin að komast í SUMARSKAP svo það er aldrei að vita nema hún bæti sig í Fréttum og pælingum af sér og sínum... Annars er Van De Irps að hugsa um að yfirgefa núverandi Bloggsvæði og ætlar að reyna fyrir sér á öðrum slóðum... Hefur fengið kvartanir yfir því að kommentakerfi síðunnar sé eitthvað lélegt og oft birtast ekki innlit frá skemmtilegum gestum... Nýja vefsvæðið er á VINSÆLASTA Bloggsvæði landans á Moggavefnum og nýja slóðin er: http://vandekamp.blog.is/blog/vandekamp Sjáum bara hvernig það gengur... Annars er MIKIÐ búið að ganga á hjá Van De Kamp familíunni... Nýjar hugmyndir að fæðast og JAFNVEL miklar breitingar í vændum... ÓGEÐspennó sko... Upplýsist síðar... Foreldrarnir lentu líka í GELGJUproblemmum og þurftu að TAKA á STÓRA sínum í uppeldi Einkasonarins... Þurftu að kenna honum MIKILVÆGA lexíu... Getur verið erfitt að vera foreldri skal ég segja ykkur... Úfffff... Litla FIÐRILDALIRFAN ummyndaðist í UNDURFAGURT grátt Firðildi öllum að óvörum fyrir tilætlaðan tíma og lifir nú ágætis lífi í litlu fiskabúri á deildinni og nærist á appelsínum og sykurvatni... Okkur skilst að Fiðrildið fagra eigi ekki LANGAN líftíma í vændum því líftími Fiðrilda er minnstur eftir að þau breitast í falleg fiðrildi... En er á meðan er eins og sagt er... Jæja frúin hefur ekki meira að segja að svo stöddu... Venlig hilsen... þar til næst...

miðvikudagur, mars 26, 2008

KRÚTTLEGT Ævintýri...


Einn Kaldan dag í Marsmánuði nánar tiltekið í lok hinnar ALÞJÓÐLEGU Fiðrildaviku fundu leikskólakrúttin mín VIÐBJÓÐSLEGT Skorkvikindi í frosnum sandinum í sandkassanum... Litla STÓRA dýrið sem var n.b. SPRELLIFANDI leit út eins og VIÐURSTYGGILEGUR búttaður ormur og var u.þ.b. 5 cm. Langt... Kvikindið hafði MARGAR fætur og líktist lirfunum sem finna má á trjánum á sumrin að því undanskildu að það var töluvert STÆRRA, GRÆNNA og BÚSTNARA... Við fyrstu sýn leit dýrið frekar ÓHUGGULEGA út í augum Starfsfólksins... Sem vildi Henda dýrinu út í hafsauga og fá Meindýraeyði í málið... Hélt að þarna væri á ferð Baneitraður ORMUR sem sennilegast hefði borist í sandinn með Kattasaur og líklegast væri sandkassinn STÚTFULLUR af Viðbjóðslegum ormum eins og þessum... Við bruggðum á það ráð að hafa samband við Náttúrufræðistofu og Irpan arkaði því af stað þangað með Leikskólakrúttin og Hálfdauða lirfuna með í för... Starfsfólk Náttúrufræðistofu tók vel á móti okkur og fannst ansi merkilegt að við hefðum fundið fyrirbærið í þessum kulda Á LÍFI... Sagði okkur að þarna væri á ferð HUGGULEG og krúttaraleg Fiðrildalirfa... Starfsfólkið ákvað að taka Litlu lirfuna í fóstur... sendi mig og Leikskólakrílin út á vettvang að tína handa henni mosa, nokkur grasstrá og greinar... Lirfan var svo sett í lítið búr og okkur var sagt að hún væri MJÖG svöng og þyrst eftir volkið í sandkassanum... Litlu lirfunni var gefið nafn og heitir nú Fiðrilda SÆTA litla lirfan ljóta... Við horfðum á Lirfuna “OKKAR” skríða að vatnsboxi sem sett var í búrið þar sem hún þambaði vatn og eftir sopann skreiddist hún að litlu grasstrái og tók um grasið með fremstu fótunum sínum og át á sig gat... Irpunni sem áður hafði EKKERT litist á litla dýrið fór nú að kenna í brjóst um litla kvikindið og fannst það orðið nokkuð FALLEGT... Í dag fengum við svo fregnir af nýjasta meðlimi Leikskólans eða öllu heldur NÝJA Gæludýrinu okkar þar sem það hefur borað sig ofan í mosann sem við tíndum handa því og hefur Púpað og bíður þess að breitast í FAGURT Fiðrildi... lirfan er af Ygluætt fyrir áhugasama lirfuáhugamenn og er nokkuð algengt hér um slóðir... Verður líklegast nokkuð fagurt á að líta þegar það verður tilbúið Stórt og appelsínugult og brúnt að lit... Við fáum að sjálfsögðu að heimsækja Litlu lirfuna ljótu eins oft og við viljum og höldum áfram að fylgjast með Ævintýrinu... Köttur úti í mýri setti upp á sig stýri... úti er Ævintýri...

föstudagur, mars 14, 2008

BÖMMER smömmer…


Usss… Van De Irps er búin að BÍÐA í heila viku eftir FYRRVERANDI nöfnu sinni í SJÓNVARPSheiminum… Hélt hún gæti haldið áfram að fylgjast með vinkonum sínum á Wisteria Lane… En VERKFALL setti strik í reikninginn… Van De Irps bíður og vonar að vitleysan haldi áfram svo hún geti haldið áfram að fylgjast með Dramanu… Frúin glápti á Dönsku vitleysuna Klovn í staðin og þar eru nottla HÆTTULEGA vandræðilega FYNDNIR þættir á ferð… Ómg…svo vandræðalegir að frúin verður að fela sig á bak við EITT STYKKI púða á meðan hún glápir á þá með öðru AUGANU… En HRYKALEGA fyndnir… Frank YFIRnördið er nottla bara MESTA nörd sem hefur fæðst á þessari PLÁNETU… Lendir í að gera áhorfandann svo GJÖRSAMLEGA YFIRsig vandræðalegan að það hálfa væri MIKLU meira en nóg… Minnir samt óneitanlega MIKIÐ á Bandarísku seríuna Curb your Enthusism þar sem Larry Dawid er í broddi fylkingar… En SKEMMTILEGIR fyrir peninginn… Irps bíður annars SPENNT eftir helginni og PÁSKAFRÍINU sem brestur á eftir örfáa daga… Ætlar að vera BARA róleg ALLA helgina… Djammaði doldið þá síðustu… Skutlaðist á Árshátíð Kópavogsbæjar þá síðustu með sínum EKTAmaka Mr. BNAK sem var bara GAMAN… Ætlar barasta að kúrast í Kósíheitum þessa helgina… OFURróleg með BNAKARANUM og Grísunum þremur… Eigið góða helgi alle sammen og gangið hægt um GLEÐINNAR dyr.. Knús í Krús… Miss Van De Irps…

þriðjudagur, mars 04, 2008

Eitt lítið BLOGGEDÍ Blogg…


Já Tja kannski maður hendi inn eins og einni færslu í tilefni þess að ÞRIÐJUDAGSkveld eru leiðinlegustu kveld vikunnar… EKKERT áhugavert í TV-inu… ENGINN vill vera Memm… og Irps hangsar Home alone því BNAKARINN er í FótboltaSPRIKLINU… BÖMMER… Annars eru Frú Van De Irps og hennar gengi í HÚSApössun þessa dagana… Irpunni er svo margt til lista lagt… getur passað börn.. hús… eldri borgara og nottla sína familíu… Irpan tók sumsé að sér hús Foreldranna í þetta skiptið sem tóku sig til og bruggðu undir sig betri fætinum og skelltu sér alla leið til INDLANDS í HRYKALEGA Ævintýraför… ÉG get sko sagt ykkur það að þau skötuhjúin áttu STEFNUMÓT við Viðbjóðslegt SKORKVIKINDI síðast þegar ég heyrði til þeirra … Það atvikaðist þannig að viftan á hótel herberginu þeirra bilaði og þau kölluðu út viðgerðarmann sem komst að því að VIFTAN stöðvaðist af því að LÓFASTÓR Könguló festist í henni… OJ BARA… Irps fékk HROLL niður eftir öllu bakinu þegar hún heyrði af Kvikindinu… Hebbði sennilegast liðið út af við sömu aðstæður… EKKI mikil KÖNGULÓARaðdáandi get ég sagt ykkur… En Visitor og hans ekta frú ELSKA svona ævintýri enda dúleg að flakka um heiminn og skoðann…
JÆJA krúttin mín þá hafið þið fengið eitt stykki færslu sem verður að þessu sinn enduð með SKEMMTILEGU gullkorni frá leikskóladúllunum…

Við fórum í smá spurningakeppni með gríslingunum á dögunum sem fór fram í samverustund… Vorum búin að spyrja börnin spjörunum úr um hitt og þetta úr reynsluheimi þeirra þegar við spurðum þau hvort þau vissu úr hvaða dýri mjólkin kæmi??? Börnin svöruðu öll í einum hnappi (n.b. mjög ákveðin og sammála um svarið): Úr kúnni… Starfsmaður spyr þá: En hvaðan kemur þá Kókómjólkin???... Börnin svara aftur um hæl… (mjög ákveðin og öll sammála): ÚR RÖRI… Ha ha ha ha… SNILLINGAR þessir gríslingar…

sunnudagur, febrúar 24, 2008

Eurovision NÖRD…

Ég verð víst að VIÐURKENNA það að ég er ALGJÖRT Eurovision NÖRD… MISSI ekki af þessum viðburði… GLÁPI úr mér AUGUN ár hvert með öl í einni og popp í hinni… SKEMMTI mér sko OFURvel yfir keppni gærkveldsins… Var barasta nokkuð sátt með úrslitin… ELSKA nottla Pál Óskar og allt sem honum viðkemur… fíla t.d. nýjustu plötuna hans Allt fyrir Ástina alveg í ræmur… Og Örlygur Smári sem samdi sigurlagið samdi nottla lögin með Palla á þeirri plötu… Svo það var ekki annað hægt en að finnast lagið flott og grípandi… Hebbði þó viljað sjá Pallann sjálfan flytja lagið… Hebbði gert meira fyrir mig sko… Við hjónin vorum ekki ALVEG jafn kát með úrslitin… BNAKARINN ekki sama diskódívan og kvinnan hans… Það sem reddaði málunum og gerði það að verkum að við HJÓNIN héldum friðinn eftir úrslitin var að við áttum sama UPPÁHALDS lag í keppninni sem var Hvar ertu nú… Hallærislega skemmtilegt og grípandi… FURÐULEGAflottir flytjendur í SKRÍTNUM búningum… Vorum sammála um að það væri flottast en Irps vildi þó ekki setja það í fyrsta sætið… Vildi senda Diskó Euro trash trans bandið til Serbíu… svona til að VONA að það kæmi okkur upp úr undankeppninni… Annars voru ágætis lög í keppninni svona yfir höfuð.. kannski síst lagið sem frú Haukdal og Magnificent sungu… var bara ekki alveg að gera sig… Nú hlakar Irpan bara til keppninnar í Maí… bíður spennt eftir hvernig hlutirnir fara þá… ÁFRAM Ísland…